Fara í efni
Jägermeister skotdæla (3 flöskur)

Leiguvara

Jägermeister skotdæla (3 flöskur)

Ískaldur Jägermeister úr þremur flöskum, fyrir stærri samkvæmi.

9.990 kr. á dag

1

Við sendum á allt höfuðborgarsvæðið. Við afhendum búnaðinn og sækjum hann daginn eftir viðburðinn.

Passar vel við

Skotglös (20 stk)

990 kr.

Um vöruna

Þessi skotdæla er stóra systir minni dælunnar. Hún tekur þrjár flöskur í einu, kælir jagerinn niður í 18 stiga frost og skilar honum ísköldum beint í glasið. Hún er gerð fyrir stærri samkvæmi og lengri kvöld. Kælitankurinn tekur 1,47 lítra og með þrjár flöskur í dælunni þarftu mun sjaldnar að skipta um flösku yfir kvöldið. Þrjár 700 ml flöskur gefa um 105 skot (miðað við 2 cl), sem dugar fyrir um 30 til 50 gesti, og dælan tekur líka stærri flöskur, allt að 1,14 lítra. Þetta er rétta dælan fyrir brúðkaup, árshátíðir, stórar afmælisveislur eða þegar jagerinn á að flæða allt kvöldið. Fyrir minni hópa dugar dælan fyrir eina flösku. Kveiktu á dælunni í tíma, því hún þarf 30 til 45 mínútur til að kólna. Skotin verða kaldari ef glösin hafa verið í frysti og þau eru borin fram strax. Dælan er eingöngu til notkunar innandyra.

Upplýsingar

Gestafjöldi
Um 30 til 50 gestir, miðað við 2 cl skot og 2 til 3 skot á gest
Flöskur
Þrjár flöskur í einu, 200 ml upp í 1,14 lítra
Kæling
Um 18 stiga frost, tekur 30 til 45 mínútur að kólna
Kælitankur
1,47 lítrar
Stærð
29 × 51,4 × 43 cm (breidd × dýpt × hæð)
Þyngd
20 kg
Rafmagn
220 til 240 V, 145 W, hljóðstig 57 dB
Notkun
Aðeins innandyra, 8 cm bil við vegg að aftan og 3 cm til hliðar

Fleiri leiguvörur