
Leiguvara
Jägermeister skotdæla (1 flaska)
Ískaldur Jägermeister úr einni flösku, fyrir minni samkvæmi.
7.990 kr. á dag
Við sendum á allt höfuðborgarsvæðið. Við afhendum búnaðinn og sækjum hann daginn eftir viðburðinn.

Passar vel við
Skotglös (20 stk)
990 kr.
Um vöruna
Jägermeister skotdælan kælir jagerinn niður í 18 stiga frost og skilar honum ísköldum beint í glasið. Þú setur flöskuna í dæluna, kveikir á henni og leyfir henni að kólna, svo er bara að hella. Þetta er minni dælan og hún tekur eina flösku í einu. Hún hentar vel í afmæli, saumaklúbba og heimapartý með um 10 til 15 gestum. Úr einni 700 ml flösku fást um 35 skot (miðað við 2 cl) og dælan tekur líka stærri flöskur, allt að 1,14 lítra. Þegar flaskan klárast skiptirðu henni út fyrir nýja, en þá þarf nýi vökvinn smá tíma til að kólna. Ef gestirnir eru fleiri skaltu skoða dæluna fyrir þrjár flöskur. Kveiktu á dælunni í tíma, því hún þarf 40 til 60 mínútur til að kólna. Skotin verða kaldari ef glösin hafa verið í frysti og þau eru borin fram strax. Dælan er eingöngu til notkunar innandyra.
Upplýsingar
- Gestafjöldi
- Um 10 til 15 gestir, miðað við 2 cl skot og 2 til 3 skot á gest
- Flöskur
- Ein flaska í einu, 200 ml upp í 1,14 lítra
- Kæling
- Um 18 stiga frost, tekur 40 til 60 mínútur að kólna
- Kælitankur
- 950 ml
- Stærð
- 21 × 39 × 40,7 cm (breidd × dýpt × hæð)
- Þyngd
- 11,5 kg
- Rafmagn
- 220 til 240 V, 100 W, hljóðstig 43 dB
- Notkun
- Aðeins innandyra, 8 cm bil við vegg að aftan og 3 cm til hliðar



